Erlent

Vélritun getur komið upp um netníðinga

Vísindamenn eru hugsanlega búnir að finna leið til þess að bera kennsl á barnaníðinga á vefnum með því einu að fylgjast með vélritunartækni þeirra. Samkvæmt The Daily Telegraph þá eru breskir vísindamenn að þróa búnað sem getur ljóstrað upp um aldur og kyn með örstuttri vélritun viðkomandi. Þá er hraði og taktur þess sem ritar greindur og það kemur upp um þig samkvæmt kenningu vísindamannanna.

Það var eftir að breska táningsstúlkan Asleigh Hall var myrt eftir að hún kynntist manni í gegnum Facebook sem vísindamenn fóru að reyna að þróa búnað sem gæti aukið öryggi barna og unglinga á netinu.

Það er prófessor Roy Maxion frá Newcastle sem leiðir rannsóknina sem fer fram í Bandaríkjunum. Honum til halds og trausts er rannsóknarlögreglumaður. Talið er að búnaðurinn, sem gæti verið sjálfvirkur inn á spjallrásum, geti komið í veg fyrir að barnaníðingar nálgist börn auk þess sem hægt sé að nota búnaðinn til þess að koma í veg fyrir netsvindl af ýmsu tagi.

Einkaaðilar hafa einnig mikinn áhuga á búnaðinum. Með búnaðinum væri þá hægt að sannreyna auðkenni einstaklinga fyrir netbanka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×