Yfirmenn biðjast afsökunar 16. febrúar 2010 00:15 Innrásin í Marja Bandarískir hermenn í átökum við talibana. fréttablaðið/AP
Mannfall almennra borgara varpaði skugga á innrás Natóherja og afganska hersins á þorpið Marja í Helmand-héraði í Afganistan. Tvö bandarísk flugskeyti misstu marks á sunnudag og lentu á íbúðarhúsi skammt fyrir utan bæinn þar sem tólf manns biðu bana. Atvikið þykir alvarlegt áfall fyrir trúverðugleika fjölþjóðaliðs NATO. Stanley McChrystal, yfirmaður Natóherjanna, baðst afsökunar og sagði að notkun hátæknivopna verði hætt meðan kannað er hvað gerðist. Hamid Karzai, forseti Afganistans, var sagður í öngum sínum vegna þess sem gerðist. Fyrir árásina hafði Karzai hvað eftir annað brýnt það fyrir yfirmönnum hersins að sýna fyllstu aðgát. Talið var að um þúsund talibanar hefðu verið í þorpinu og næsta nágrenni. Um fimmtán þúsund manna innrásarlið, skipað afgönskum, bandarískum og breskum hermönnum, réðst til atlögu á laugardag og hafa síðan jafnt og þétt þrengt að talibönum. Yfirmenn afganska hersins segja innrásarherina hafa náð Marja og nágrenni að mestu leyti á sitt vald, mótspyrna frá talibönum sé lítil þegar haldið er inn í bæinn. Leyniskyttur hafa þó gert innrásarhernum skráveifur og komið hefur til skotbardaga.- gb
Mest lesið Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Komið að ögurstundu Erlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Innlent Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Erlent Fleiri fréttir Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Ný landsstjórn boðar óbreytt ríkjasamband við Danmörku Fylgdust með rússneskum kafbátum við sæstreng í Norðursjó Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Sjá meira