Breskir bankastarfsmenn bálreiðir 10. febrúar 2009 14:38 MYND/AP
Starfsfólk breskra banka kom saman fyrir utan þinghúsið í Lundúnum í dag til að mótmæla vinnuaðferðum bankastjórnenda fyrir alheimskreppu. Þeir hafi komið fjármálastofnunum á kaldan klaka með áhættusækni sinni og þar með stefnt störfum undirmanna sinna í hættu. Á meðan hafi þeir síðan fengið himin háar bónusgreiðslur. Mótmælin hófust um leið og stjórnendur tveggja banka sem breska ríkið hefur tekið yfir mætti fyrir þingnefnd til að svara spurningum um vanda breskra banka. Það voru stjórnendur Royal Bank of Scotland (RBS) og Halifax Bank of Scotland (HBOS) en breska ríkið hefur tekið yfir stóran hluta þessara banka til að forða þeim frá gjaldþroti. Breskir bankar hafa sagt um 14 þúsund starfsmönnum upp störfum síðan alheimskreppan skall á síðastliðið haust. Alþjóðabankar með rekstur í Bretlandi hafa einnig sagt upp mörg þúsund starfsmönnum. Cath Speight, talsmaður félags bankamanna í Bretlandi, sagði það reita skjólstæðinga sína til reiði að vita til þess að stjórnendur hafi fengið háar bónusgreiðslur síðustu fimm til sex árin meðan ákvarðanir hafi verið teknar sem hafi siglt öllu í strand. Stjórnendurnir fari varla á atvinnuleysisbætur nú þegar harðni á dalnum en það geri láglaunafólk í fjármálageiranum sem hún tali fyrir. Þessir starfsmenn viti ekki hvernig þeir eigi að borga af lánum sínum nú þegar þeir hafi misst vinnuna án þess að það sé beinlínis þeim sjálfum að kenna. Ofan á allt fái þessir starfsmenn svo ekki lágar bónusgreiðslur á meðan stjórnendur sem hverfi af vettvangi fái starfslokagreiðslur. Speight segir vaxandi reiði í bresku samfélagi þrátt fyrir afsökunarbeiðni stjórnenda RBS og HBOS fyrir þingnefnd í morgun. Breska ríkið þurfi nú að tryggja að störf í ríkisvæddum bönkum megi ekki útvista til útlanda. Tryggja þurfi að störf í breskum bönkum verði áfram unnin í Bretlandi.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Sjá meira