Erlent

Óttast glæpaöldu í Bretlandi

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Bresk yfirvöld óttast að glæpaalda fari um landið með versnandi efnahagsástandi. Tölur frá innanríkisráðuneytinu gefa þetta til kynna en að meðaltali er brotist inn á breskt heimili á tveggja mínútna fresti.

Þá hafa þjófnaðir, svik og falsanir einnig tekið mikinn kipp eftir að skórinn tók að kreppa og rán þar sem hnífar eða eggvopn koma við sögu hafa aukist um fimmtung. Yfir fimm manns láta nú að jafnaði lífið í hverri viku af völdum hnífstungu. Innanríkisráðherra Bretlands hefur boðað sérstakt átak gegn innbrotum í næsta mánuði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×