Tottenham fær á sig fæst mörk á heimavelli 4. maí 2009 13:45 Menn eru hættir að hlæja að Heurelho Gomes - í bili að minnsta kosti Nordic Photos/Getty Images
Brasilíski markvörðurinn Heurelho Gomes hjá Tottenham byrjaði ekki vel hjá liðinu í haust og mátti hlusta á háðsglósur um allt England vegna mistaka sinna og skrautlegra marka sem hann fékk á sig. Enginn þorði að vona að þessi litríki markvörður yrði lengi í herbúðum liðsins eftir að Harry Redknapp tók við liðinu, en hann neyddist um tíma til að notast við Brasilíumanninn þó sjálfstraust hans væri í molum eftir hver mistökin á fætur öðrum. "Gomes hefur sýnt mikinn karakter í vetur, því hann fékk háðsglósur yfir sig hvar sem hann kom. Áhorfendurnir létu hann virkilega heyra það," sagði Harry Redknapp knattspyrnustjóri. Nú eru menn að mestu hættir að hlæja, því þegar rýnt er í tölfræðina, má sjá að Tottenham er með bestu vörnina á heimavelli í allir úrvalsdeildinni. Tottenham hefur aðeins fengið á sig níu mörk á heimavelli í allan vetur og ef liðið fær ekki á sig meira en eitt mark í síðasta heimaleiknum gegn Manchester City, verður það besti árangur liðsins í næstum 90 ár. Tottenham hefur haldið hreinu í síðustu sex heimaleikjum en félagsmetið er 11 mörk fengin á sig í gömlu annari deildinni árið 1920. Tottenham fékk á sig 34 mörk á heimavelli á síðustu leiktíð, en það var það mesta í deildinni fyrir utan Derby sem féll úr deildinni. Þetta er ekki síður merkileg staðreynd í ljósi þess að Tottenham var á botni úrvalsdeildarinnar framan af vetri og fékk aðeins tvö stig úr fyrstu átta leikjunum sínum undir stjórn Juande Ramos. Fimm af mörkunum níu sem Tottenham hefur fengið á sig á heimavelli komu snemma í haust í stjórnartíð Juande Ramos. Þetta skrifast að miklu leyti á bætta frammistöðu Heurelho Gomes í marki Tottenham, en þá má heldur ekki gleyma miðvörðunum Ledley King og Michael Dawson, sem hafa staðið sig mjög vel á leiktíðinni. Redknapp hefur líka miklar mætur á miðvarðaparinu sínu. "King og Dawson eru fyllilega á pari með John Terry og Ricardo Carvalho að mínu mati og það er ekki mikill munur á þeim og Ferdinand og Vidic hjá Manchester United," sagði Redknapp.
Enski boltinn Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Fótbolti Fleiri fréttir Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Manchester City með skrifstofu Guardiola til sölu Dalglish: „Fótboltinn hefur misst eina af sínum sönnu goðsögnum“ Kevin Keegan látinn Chelsea að kaupa Rogers á 117 milljónir punda „Haldið Tuchel nema Guardiola sé laus“ Lið Ísaks Bergmanns keypti son Emile Heskey Aston Villa vann kapphlaupið um HM-stjörnuna Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Bowen heldur tryggð eftir fallið Saliba frá í nokkra mánuði Arsenal að landa grískum landsliðsmanni Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Scaloni: Argentína ekki að spila eins illa og fólk segir Carragher vill að enska liðið nýti sér Messi Youri Tielemans genginn til liðs við Manchester United City tilbúið að greiða 85 milljónir punda fyrir samherja Hákonar Brighton aldrei borgað jafn mikið fyrir leikmann „Það er hluti af töfrunum við að vera stjóri Liverpool“ Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Sjá meira