Búist við afsögn forsetans í dag vegna útgjaldahneykslisins 19. maí 2009 12:23
Breskir fjölmiðlar greindu frá því í morgun að Michael Martin, forseti neðri málstofu breska þingsins, hefði ákveðið að víkja og að hann myndi tilkynna um það síðar í dag. Það geri hann vegna útgjaldahneykslisins sem hefur skekið breskan þing heim og þjóðlíf allt í Bretlandi síðustu viku. Ekki mun þó vitað hvort hann hættir strax eða situr fram að næstu þingkosningum sem verða í síðasta lagi um mitt næsta ár. Þetta yrði þá í fyrsta sinn í rúmlega 300 ár sem forseti þingdeildarinnar hrökklaðist frá völdum. Kröfur um afsögn Martins hafa verið háværar síðustu vikuna en skrifstofa þingforstans sér um endurgreiðslur til þingamanna vegna útgjalda og tekur afstöðu til umsókna um slíkar greiðslur. Lundúnablaðið Telegraph hefur síðustu rúma vikuna birt greinaröð um vafasamar endurgreiðslur til þingamanna úr öllum flokkum á breska þinginu. Þar hefur komið fram að þingmenn hafi sumir teygt reglurnar til hins ítrasta meðan aðrir þingmenn eru grunaðir um lögbrot. Bresku almenningi hefur blöskrað og mælist traust á stjórnmálamönnum í Bretlandi nú í lægstu lægðum. Er Martin gagnrýndur fyrir að hafa ekki hafnað fjölda umsókna um endurgreiðslur síðan hann tók við sem þingforseti árið 2000. Hann þykir einnig hafa tekið illa á málinu eftir að Telegraph hóf að birta upplýsingar úr gögnum sem leikið var til þeirra. Fjölmargir þingmenn úr öllum flokkum á breska þinginu krafist þess að Martin víki. 23 þingmenn hafa búið sig undir að leggja fram vantraust á hann. Engin fordæmi eru fyrir að leiðtogar breskra flokka á þingi krefjist afsagnar þingforseta en það gerðist í vikunni þegar Nick Clegg leiðtogi Frjálsyndra demókrata krafðist þess að Martin viki úr embætti. Gordon Brown, forsætisráðherra og leiðtogi Verkamannaflokksins, og David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, hafa sagt þetta mál þingsins og ekki viljað taka undir með Clegg.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Fleiri fréttir Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Sjá meira