Erlent

Búist við afsögn forsetans í dag vegna útgjaldahneykslisins

Breskir fjölmiðlar greindu frá því í morgun að Michael Martin, forseti neðri málstofu breska þingsins, hefði ákveðið að víkja og að hann myndi tilkynna um það síðar í dag. Það geri hann vegna útgjaldahneykslisins sem hefur skekið breskan þing heim og þjóðlíf allt í Bretlandi síðustu viku. Ekki mun þó vitað hvort hann hættir strax eða situr fram að næstu þingkosningum sem verða í síðasta lagi um mitt næsta ár.

Þetta yrði þá í fyrsta sinn í rúmlega 300 ár sem forseti þingdeildarinnar hrökklaðist frá völdum.

Kröfur um afsögn Martins hafa verið háværar síðustu vikuna en skrifstofa þingforstans sér um endurgreiðslur til þingamanna vegna útgjalda og tekur afstöðu til umsókna um slíkar greiðslur.

Lundúnablaðið Telegraph hefur síðustu rúma vikuna birt greinaröð um vafasamar endurgreiðslur til þingamanna úr öllum flokkum á breska þinginu. Þar hefur komið fram að þingmenn hafi sumir teygt reglurnar til hins ítrasta meðan aðrir þingmenn eru grunaðir um lögbrot.

Bresku almenningi hefur blöskrað og mælist traust á stjórnmálamönnum í Bretlandi nú í lægstu lægðum.

Er Martin gagnrýndur fyrir að hafa ekki hafnað fjölda umsókna um endurgreiðslur síðan hann tók við sem þingforseti árið 2000. Hann þykir einnig hafa tekið illa á málinu eftir að Telegraph hóf að birta upplýsingar úr gögnum sem leikið var til þeirra.

Fjölmargir þingmenn úr öllum flokkum á breska þinginu krafist þess að Martin víki. 23 þingmenn hafa búið sig undir að leggja fram vantraust á hann. Engin fordæmi eru fyrir að leiðtogar breskra flokka á þingi krefjist afsagnar þingforseta en það gerðist í vikunni þegar Nick Clegg leiðtogi Frjálsyndra demókrata krafðist þess að Martin viki úr embætti.

Gordon Brown, forsætisráðherra og leiðtogi Verkamannaflokksins, og David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, hafa sagt þetta mál þingsins og ekki viljað taka undir með Clegg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×