Erlent

Schwarzenegger vel tekið í Írak

Fylkisstjórinn kom færandi hendi og afhendi fjölda hermanna vindla að gjöf. Mynd/AP
Fylkisstjórinn kom færandi hendi og afhendi fjölda hermanna vindla að gjöf. Mynd/AP
Arnold Schwarzenegger, fylkisstjóri Kaliforníu, var tekið fagnandi þegar hann heimsótti bandaríska hermenn í Írak í dag. Hann kom færandi hendi og afhendi fjölda hermanna vindla að gjöf.

Schwarzenegger hitti hermenn í Victory herbúðunum í útjaðri höfuðborgarinnar Bagdad þar sem honum var afar vel tekið. Fylkisstjórinn hvatti hermennina til dáða og sagði þá vera að vinna þjóð sinni og íbúum Íraks mikið gagn.

Schwarzenegger hefur lengi langað til að heimsækja bandaríska hermenn Írak. Hann varð til að mynda að hætta við ferð sína í sumar vegna fjárlagavinnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×