Erlent

Fleiri Danir eignast skotvopn

Lögreglan óttast að sífellt fleiri ungmenni eignist skotvopn.
Lögreglan óttast að sífellt fleiri ungmenni eignist skotvopn.
Danska lögreglan óttast að sífellt fleiri dönsk ungmenni eignist skotvopn. Skotvopnaeign sé ekki alfarið bundin við glæpagengi heldur séu ungir menn sem ekki eru hluti af slíkum gengjum líka að eignast skotvopn.

Síðastliðna nótt var 22 ára gamall karlmaður skotinn í Hundige sunnan af Kaupmannahöfn. Sú skotárás var ekki tengd gengjaátökum af neinu tagi, að mati lögreglunnar.

Lögreglan segir að þrátt fyrir að skotvopnaeign verði sífellt algengari sé engin leið að sjá hvernig ungmennin verði sér úti um slík vopn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×