Baskar ráðast á fjölskyldufólk í blokk 30. júlí 2009 04:00 Öflug bílasprengja sprakk að næturlagi fyrir utan bygginguna þar sem lögreglumenn og fjölskyldur þeirra búa. Mynd/AP
Talið er að ETA, aðskilnaðarsamtök Baska, hafi staðið að baki öflugri bílasprengju, sem olli verulegu tjóni á norðanverðum Spáni í fyrrinótt. Um sextíu manns slösuðust og miklar skemmdir eru á byggingu, þar sem lögreglumenn og fjölskyldur þeirra búa. Sprengjan sprakk fyrir utan þessa byggingu í bænum Burgos í Baskahéruðum Spánar um tvöleytið að staðartíma. Enginn frá ETA hringdi áður en sprengjan sprakk til að vara við, eins og venjan hefur þó verið. Engu að síður telja yfirvöld líklegast að ETA hafi staðið að þessu voðaverki. „Árásinni var greinilega ætlað að valda dauðsföllum," sagði Alfredo Perez Rubalcaba, innanríkisráðherra Spánar. „Þessu var ekki aðeins beint að þeim sem starfa í varðliðasveitunum, sem væri fyrirlitlegt í sjálfu sér, heldur var stefnt að því að meiða fjölskyldur þeirra, sem gerir þetta enn viðurstyggilegra." Þetta er áttunda árásin frá ETA á þessu ári, sem sýnir greinilega að samtökin eru í fullu fjöri þrátt fyrir að lögreglunni á Spáni og í Frakklandi hafi tekist að gera þeim stórar skráveifur undanfarið. Samtökin hafa orðið meira en 800 manns að bana síðan 1968 þegar þau hófu vopnaða baráttu fyrir stofnun sjálfstæðs Baskalands.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira