Guantanamo í samræmi við Genfarsáttmálann 24. febrúar 2009 13:22 Binyam Mohamed við komuna til Bretlands í gær. MYND/AP
Bandaríkjaher segir að aðbúnaður og meðferð fanga í Guantanamo-fangabúðunum á Kúbu sé í samræmi við ákvæði Genfarsáttmálans. Obama Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað að búðunum skuli lokað innan árs. Einum Guantanamofanga var sleppt í gær og hann sendur til Bretlands. Binyam Mohamed er frá Marokkó en búsettur í Bretlandi. Hann hefur mátt dúsa í Guantanamo fangabúðunum í rúm fjögur ár. Þangað sem hann var fluttur eftir að hann var handtekinn í Pakistan grunaður um aðild að hryðjuverkum. Hann var ákærður fyrir að hafa lagt á ráðin um hryðjuverk í Bandaríkjunum. Fallið var frá þeirri ákæru í október. Mohamed segist hafa mátt sæta pyndingum frá því hann var tekinn höndum 2002 en hann hafi verið fluttur víðar áður en hann hafi verið færður í Guantanamo fangabúðirnar í september 2004. Mohamed kom til Lundúna í gær. Lögfræðingar á hans vegum reyna nú að fá leynd aflétt af gögnum sem eru sögð sína að Bandaríkjamenn, með vitneskju Breta, hafi sent Mohamed til Marokku þar sem vitað hafi verið að hann myndi sæta pyndingum. Mohamed segist hafa sætt pyndingum þar og í Pakistan og Afganistan áður en til Kúbu hafi verið komið. Bandaríkjamenn hafi beitt hann illri meðferð til að reyna að fá staðfestan grun sinn um aðild hans að hryðjuverkum. Barack Obama, Bandaríkjaforseti, hefur fyrirskipað að Guantanamo fangabúðunum verði lokað innan árs. Í morgun var birt skýrsla frá bandaríska varnarmálaráðuneytinu þar sem fullyrt er að meðferð fanga og aðbúnaður í fangabúðunum sé í samræmi við þriðja Genfarsáttmálann um meðferð stríðsfanga. Lagt er til að gerð verði þó breyting á ýmsu í fangabúðunum áður en þeim verði lokað. Föngum verði sem dæmi leyft að eiga samskipti líkt og í öðrum fangelsum víða um heim og að fangar verði ekki settir í einangrun nema brýna nauðsyn beri til.
Mest lesið Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Innlent Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Erlent Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Innlent Mangione sagður ætla að játa Erlent „Þú færð mig ekki til að segja já við þessu“ Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Erlent Fleiri fréttir Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Sjá meira