Enski boltinn

Duff á leið til Fulham

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Damien Duff og Grétar Rafn Steinsson í baráttunni.
Damien Duff og Grétar Rafn Steinsson í baráttunni. Nordic Photos / Getty Images

Damien Duff mun vera á leið til Lundúna til að ganga frá félagaskiptum sínum frá Newcastle í Fulham.

Þetta hefur fréttastofa Sky Sports eftir sínum heimildum en Fulham mun hafa boðið fjórar milljónir punda í kappann. Roy Hodgson, stjóri liðsins, hefur staðfest áhuga þeirra á Duff.

Sjálfur mun Duff vera spenntur fyrir því að flytja aftur til Lundúna og bindur vonir við að ganga frá félagaskiptunum núna um helgina.

Hann hefur undanfarin ár leikið með Newcastle sem féll úr ensku úrvalsdeildinni núna í vor.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×