Erlent

Eins árs frestur til lokunar Guantanamo eina vitið

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Robert Gates.
Robert Gates. MYND/Farm2.static.com

Lokun fangabúðanna við Guantanamo-flóa á Kúbu er nauðsynleg og eins árs frestur sem Barack Obama Bandaríkjaforseti gaf til þess er að öllum líkindum eina færa leiðin í stöðunni. Þetta sagði Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, í gær og bætti því við að væri eins árs tímamarkið ekki til staðar gætu yfirvöld frestað lokuninni endalaust.

Hann sagði lokun Guantanamo ekki tákna að föngunum yrði sleppt, yfir mörgum þeirra yrði réttað en aðrir yrðu fluttir í önnur fangelsi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×