Innlent

Utanríkisráðuneytið kannast ekki við Trichet-gögnin

Davíð Oddsson í umdeildu Kastljósviðtali.
Davíð Oddsson í umdeildu Kastljósviðtali.

Upplýsingafulltrúi utanríkisráðuneytisins Urður Gunnarsdóttir segist í samtali við fréttastofu ekki kannast við neinar skýrslur eða gögn sem Davíð Oddsson fyrrverandi seðlabankastjóri vísar til í Morgunblaðinu í dag.

Hann segir að skýrsla sem unnin hafi verið af nefnd á vegum OECD undir stjórn núverandi seðlabankastjóra Evrópu, Jean Claude Trichet, eigi að vera til í Utanríkisráðuneytinu. Í henni sagði að innstæðutryggingakerfið gilti ekki ef um algjört bankahrun er að ræða í viðkomandi landi.

Þá eigi einnig að vera til gögn þar sem fram kemur að Englandsbanki taldi að Íslendingar ættu ekki að greiða fyrir Icesave. Urður sagðist ekki vita um þau gögn sem Davíð vísi til en vinna verði hafin á morgun við að finna þau, séu þau til.

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hafði ekki lesið viðtalið þegar fréttastofa náði tali af honum í gærkvöldi.

Í viðtalinu í Morgunblaðinu heldur Davíð Oddsson því fram að Steingrímur, auk Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur sem og Jóhanna Sigurðardóttir, hafi stórskaðað hagsmuni Íslendinga með því að gefa út yfirlýsingar um að ríkið stæði straum af Icesave.

Steingrímur spurði þá hvort Davíð væri búinn að gleyma undirskriftinni í haust og vísar þar til þess þegar Davíð, þá seðlabankastjóri, skrifaði undir samning við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um skuldbindingar Íslendinga varðandi Icesave. Steingrímur sagðist enga ástæðu til þess að svara Davíð. Hann vonaði bara einlæglega að hann hefði það gott.


Tengdar fréttir

Davíð Oddsson: Gætum stefnt í eilífðar fátækt

„[...] Þetta er ótrúlegt klúður sem stjórnvöld hafa komið landinu í og við gætum stefnt hér hraðbyr í einhverja eilífðarfátækt,“ segir Davíð Oddsson fyrrum forsætisráðherra til þrettán ára og nú síðast Seðlabankastjóri í viðtali við Agnesi Bragadóttur í sunnudagsblaði Morgunblaðsins sem kom út í kvöld.

Steingrímur J. Sigfússon: Ég vona bara að Davíð hafi það gott

„Ég er bara ekki búinn að lesa þetta. Það er enginn heima og Mogginn er ekki kominn í hús," sagði fjármálaráðherrann Steingrímur J. Sigfússon þegar blaðamaður náði tali af honum rétt fyrir kvöldmatarleytið en þá var hann nýkominn heim úr vinnu. Hann neitaði alfarið að tjá sig um viðtalið efnislega fyrr en hann væri búinn að lesa það.

Maó formaður fylgist með Davíð

Óhætt er að kalla nýjasta viðtali hennar Agnesar Bragadóttur við Davíð Oddsson pólitíska bombu í samfélaginu. Fyrrum forsætisráðherrann, seðlabankastjórinn og formaður Sjálfstæðisflokksins lætur gamminn geysa með miklum krafti.

Davíð vill ekki borga

Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra og nú síðast Seðlabankastjóri, segist ekki vilja greiða Icesave-skuldir án þess að reynt verði að fara dómstólaleiðina á undan. Þetta kemur fram í viðtali sem Agnes Bragadóttir tók við hann í sunnudagslaði Morgunblaðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×