Tugir almennra borgara falla í Srí Lanka 4. febrúar 2009 12:50 Fórnarlömb stríðandi fylkinga í Srí Lanka. MYND/AP
Sameinuðu þjóðirnar segja fimmtíu og tvo almenna borgara hafa fallið í bardögum stjórnarhers og uppreisnarmanna Tamíltígra á Srí Lanka síðasta sólahring. Klasaskrpengja mun hafa skollið á sjúkrahús á bardagasvæðinu en sú bygging hefur orðið fyrir ítrekuðum árásum síðustu daga. Talsmaður Sameinuðu þjóðanna segir að klasasprengja hafi skollið á sjúkrahúsi bænum Púthúkkúdíríuppú sem er á yfirráðasvæði Tígranna. Það svæði fer sífellt minnkandi um leið og sókn stjórnarhers herðist. Herinn segist ekki hafa gert árásir á sjúkrahúsið, uppreisnarmenn hefa ekki tjáð sig um málið. Sameinuðu þjóðirnar segja fimmtíu og tvo almenna borgara hafa fallið í Sudanthírapúram í Mullatívu héraði þar sem tígrarnir eru enn með völdin. Áttatíu borgarar til viðbótar munu hafa særst. Hart er barist á svæðinu. Mahinda Rajapaksa, forseti Srí Lanka, segir að innan fárra daga verði búið að ganga milli bols og höfuðs á tígrunum og þeirra samtök upprætt. Talið er að um tvö hundruð og fimmtíu þúsund almennir borgarar séu fastir á átakasvæðinu og komist hvergi. Stjórnvöld hafa afmarkað griðarsvæði og segjast ekki geta tryggt öryggi borgara þar sem barist sé. Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna og breski starfsbróðir hennar David Miliband sögðu á blaðamannafundi í gær að vopnahlé yrði að taka gildi sem fyrst svo hægt verði að koma hjálpargögnum á svæðið. Stjórnvöld segja vopnahlé ekki koma til greina. Bardögum ljúki þegar tígrarnir verði sigraðir. Tamíltígrarnir segjast ekki leggja niður vopn fyrr en tryggt verði að þeir og aðrir Tamílar geti lifaði í landinu í friði og virðing þeirra og sjálfræði tryggt. Tamíltígrar hafa barist fyrir sjálfstæðu ríki Tamíla síðan 1973 og hafa sjötíu þúsund manns fallið í átökum síðan þá.
Mest lesið Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Erlent „Varð að martröð“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Erlent Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Erlent Fleiri fréttir Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Einn í lífshættu eftir að bíl var ekið inn í þvögu Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Farage sextánfaldar sætin á sveitarstjórnarstiginu Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Farage og félagar í Reform margfalda styrk sinn í sveitarstjórnum Englands Trump hefur í hótunum við Evrópusambandið Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Sé ekki það sama og fyrir sex árum með Covid-19 Vopnaður maður sagður hafa ógnað Andrési fyrrverandi prins Handtaka kínverskan meintan njósnara í Noregi Þrjár „brúðir ISIS“ ákærðar fyrir hryðjuverk og þrælahald Kortleggja ferðir tuga sem fóru frá borði eftir að sá fyrsti dó Trump enn með tangarhald á Repúblikanaflokknum Risaflóðbylgja í Alaska talin nærri fimm hundruð metra há Franskur floti á leið til Persaflóa Sjá meira