Heilbrigðismálin gætu þurft að bíða 23. júlí 2009 07:00 Barack Obama Bandaríkjaforseti brá sér á þriðjudag út í garðinn við Hvíta húsið að ræða við fjölmiðla um heilbrigðisfrumvarp sitt.fréttablaðið/ap
Bandaríkin Barack Obama hefur nú í vikunni mætt harðri andstöðu á Bandaríkjaþingi gegn frumvarpi sínu um víðtækar umbætur í heilbrigðismálum. Stórum hluta þingmanna, einkum repúblikönum en einnig mörgum demókrötum, vex í augum sá kostnaður sem frumvarpið er talið hafa í för með sér fyrir ríkissjóð. Frumvarpið þykir einnig það flókið, að þingmenn vilja gjarnan fá meiri tíma til að grandskoða það. Fátt bendir því til þess að atkvæðagreiðsla um frumvarpið fari fram í ágúst, eins og Obama hafði stefnt að. Aðalmarkmið frumvarpsins er að allir Bandaríkjamenn njóti heilbrigðistryggingar. Nærri fimmtíu milljónir Bandaríkjamanna, einn af hverjum sex, eru nú án heilbrigðistryggingar. Obama segir þó mikla vinnu hafa verið lagða í að draga úr kostnaðinum. Þingið hafi auk þess árum saman verið að leita leiða til að bæta heilbrigðistryggingakerfið og ætti því að hafa góða þekkingu á málinu. „Við höfum ekki efni á pólitík tafa og ósigurs þegar að heilbrigðismálum kemur,“ sagði Obama nú í vikunni og leggur allt kapp á að fá málið í gegn sem fyrst. Hann vitnaði í repúblikana á þingi sem hafi sagt að takist þeim að fella þetta mál þá verði það forsetanum að falli. „Hugsið ykkur,“ sagði hann svo. „Þetta snýst ekki um mig, þetta snýst ekki um pólitík. Þetta snýst um heilbrigðiskerfi sem er að sliga bandarískar fjölskyldur, bandarísk fyrirtæki og bandarískt efnahagslíf.“ Meðal þeirra sem styðja Obama af heilum hug í þessu máli er repúblikaninn Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri í Kaliforníu, sem sjálfur hefur reynt að koma á víðtækum heilbrigðisumbótum í ríki sínu, en strandaði á ofurafli hagsmunahópa sem stöðvuðu frumvarpið. „Okkur tókst það næstum því,“ sagði Schwarzenegger í viðtali á sjónvarpsstöðinni ABC. „Við höfðum fengið málið samþykkt í neðri deildinni, en þegar það fór til öldungadeildarinnar þá var það fellt vegna sérhagsmunaaðila sem voru of valdamiklir.“ Heilbrigðismálin eru reyndar aðeins annað af tveimur stórum frumvörpum, sem Obama hefur undanfarna mánuði reynt að fá þingið til að samþykkja. Hitt snýst um loftslagsmálin og gengur út á það að bandarísk fyrirtæki og almenningur dragi verulega úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda, og fái til þess vænan stuðning úr ríkissjóði. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira