Erlent

Tugir féllu í árásum uppreisnarmanna

Frá Kartúm, Khartoum, höfuðborg Súdans. Mynd/AP
Frá Kartúm, Khartoum, höfuðborg Súdans. Mynd/AP
Eftir hörð átök í Darfur-héraði í Súdan liggja 20 hermann í valnum og 43 uppreisnarmenn. Uppreisnarmenn réðust á eina af höfuðstöðvum súdanska hersins í héraðinu með þeim afleiðingum að hörð átök brutust út.

Þetta er í annað sinn á viku sem uppreisnarmenn ráðast á súdanska hermenn. Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur miklar áhyggjur af ástandinu og nýjustu fregnum af átökum í landinu. Hann hvetur stríðandi fylkingar til að hefja friðarviðræður.

Talið er að allt að 300 þúsund hafi látist og tvær milljónir manna flúið heimili sín á síðustu árum vegna átakanna í Darfur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×