Erlent

Öldungadeild felldi tillögu um lokun Guantanamo

Barack Obama Bandaríkjaforseti varð fyrir miklu áfalli í gær þegar öldungadeild Bandaríkjaþings felldi tillögu um lokun Guantanamo-fangabúðanna á Kúbu.

Óskað var eftir fjárveitingu vegna lokunar fangabúðanna og að tvö hundruð og fjörutíu fangar þar yrðu fluttir annað, þar sem mál þeirra yrðu tekin fyrir og þeir vistaðir. Níutíu öldungadeildarþingmenn úr röðum demókrata og repúblíkana höfnuðu tillögunni en aðeins sex voru henni fylgjandi.

Fulltrúar beggja flokka sögðu áætlun forsetans um lokun búðanna ekki nægilega ítarlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×