Erlent

Með vel á annað hundrað vopna

Danska lögreglan hefur á síðustu dögum fundið um 150 skotvopn á mismunandi stöðum í Kolind á Jótlandi, eftir því sem fram kemur í Danska ríkisútvarpinu.

Forsaga málsins er að þann 20. janúar fór sérsveit lögreglunnar til Kolind eftir að hafa borist nafnlaus ábending. Þar gerði lögreglan húsleit hjá 56 ára gömlum karlmanni og fannst fjöldi vopna við leit. Á fimmtudag fóru lögreglumenn svo aftur að húsnæði í nágrenni mannsins og fundu þá aftur skotvopn í hans eigu. Á föstudag fóru lögreglumenn í þriðja skiptið til Kolind og þá fundust 20 rifflar, ein vélbyssa og sex skammbyssur.

Hinn 56 ára gamli karlmaður var úrskurðaður í gæsluvarðhald. Það kom fram í gæsluvarðhaldssúrskurðinum að maðurinn hefur leyfi fyrir vissum byssu en alls ekki til þess að eiga eins mörg vopn og hann hafði í fórum sínum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×