Erlent

Fimm mótmælendur dæmdir til dauða

Frá mótælunum sem eftir forsetakosningarnar í júní sl. Mynd/AP
Frá mótælunum sem eftir forsetakosningarnar í júní sl. Mynd/AP
Fimm mótmælendur hafa hlotið dauðadóm í Íran fyrir að hafa tekið þátt í mótmælunum sem brutust út eftir forsetakosningarnar í sumar þegar Mahmoud Amadinejad var endurkjörinn forseti landsins. Íranska dómsmálaráðuneytið segir fólkið hafa tilheyrt andspyrnu- og hryðjuverkahópum.

Mótmælendur héldu því fram að Amadinejad hefði unnið með víðtæku kosningasvindli. Þúsundir voru handteknir í kjölfar mótmælaöldunnar og átakanna sem brutust út og að minnsti 30 létust. 200 mótmælendur eru enn í haldi yfirvalda.

Dómsmálaráðuneytið segir að búið sé að rétta í máli 89 einstaklinga. Fyrir utan þá sem hafi verið dæmdir til dauða hafi 81 hlotið allt frá sex mánaða til 15 ára fangelsisdóm.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×