Erlent

Ríkisstjóri Illinois rekinn

Rod Blagojevich.
Rod Blagojevich.

Ríkisþingið í Illinois í Bandaríkjunum rak í gærkvöldi ríkisstjórann Rod Blagojevich fyrir brot í starfi. Allir fulltrúar á þinginu greiddu atkvæði með því að reka hann. Blagojevich er einnig bannað héðan í frá að gegna opinberu embætti í Illinois-ríki.

Ríkisstjórinn fyrrverandi var meðal annars ákærður fyrir að hafa lagt á ráðin um að selja öldungadeildarþingsæti Baracks Obama Bandaríkjaforseta. Hann neitar enn sök. Opinbert sakamál er í undirbúningi gegn Blagojevich.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×