Erlent

Faðir hermannsins: „Hann tók málin í sínar hendur“

Hermenn í Írak.
Hermenn í Írak.

Faðir bandaríska hermannsins sem ákærður hefur verið fyrir að drepa fimm félaga sína á heilsugæslustöð á herstöð í Írak, þar sem hermenn sækja sér m.a aðstoð við svokallaðri bardaga-streitu, segir það ekki hafa verið streitu sem fékk son hans til þess að fremja ódæðið. Faðirinn segir að yfirmenn hans hafi fengið hann til þess að ganga fram af brúninni.

Wilburn Russel segir að ótilgreindar hótanir hafi verið settar fram í garð sonarins nýlega. „Þeir eyðilögðu hann."

„Eiginkona hans sagði okkur að hann hefði sent sér tölvupóst fyrir skömmu þar sem hann sagðist nýbúinn að upplifa tvo erfiðustu daga lífs síns. Yfirmenn hans hefðu hótað sér," segir faðirinn.

Sonur hans, John M. Russell 44 ára, er ákærður fyrir að hafa drepið fimm félaga sína í hernum. „Þú átt ekki margra kosta völ þegar yfirmenn þínir hóta þér."

Og faðirinn bætti við. „Hann tók málin í sínar hendur."

Wilburn Russel segir að fjölskylda sín sé enn að reyna að komast að því hvað nákvæmlega gerðist. Hann hafi hlakkað til að fá strákinn heim sem var að ljúka hermennsku.

„Við erum niðurbrotin, okkur er illt í hjartanu, ekki bara vegna sonar okkar heldur allra þeirra sem hlut eiga að máli. Þeim sem létust og fjölskyldur þeirra. Guð minn góður, þetta er hræðilegt."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×