Yfir 25.000 manns vakta Obama í dag Atli Steinn Guðmundsson skrifar 20. janúar 2009 08:15
Yfir 25.000 manns koma að öryggisgæslu í Washington þegar Barack Obama sver embættiseið sinn í dag. Fertugasti og fjórði forseti Bandaríkjanna sver embættiseið sinn á hádegi í dag að staðartíma og er búist við að um fjórar milljónir manna leggi leið sína til Washington til að fylgjast með atburðinum og ekki síður til að hlýða á ræðu forsetans nýja sem hann flytur af tröppum þinghússins Capitol Hill eftir að hafa svarið þjóðinni hollustu sína. Gríðarleg öryggisgæsla er í borginni og er gert ráð fyrir því að 8.000 lögregluþjónar verði á vakt við embættistökuna. Að auki hafa 10.000 þjóðvarðliðar verið kvaddir til og 7.500 hermenn. Stór hluti miðborgar Washington verður algjörlega lokaður fyrir bílaumferð, umfangsmikið eftirlit fer fram úr lofti, varðskip sigla um árnar og flestum brúm í nágrenni miðborgarinnar verður lokað. Þá verða sérstök efnavopnateymi á vakt víða um borgina, búin fullkomnasta tæknibúnaði til að mæla hvers kyns eiturefni í loftinu. Homeland Security segist þó ekki eiga von á neinum sérstökum ógnum og sennilega verði það einungis napur kuldinn í Washington sem herji á nýja forsetann og áhorfendur.
Mest lesið Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Erlent Þrjú hjólhýsi „splundruðust“ á Holtavörðuheiðinni Innlent „Sprengingarnar eru að skemma húsin okkar“ Innlent Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Erlent Sekta Símann fyrir að auglýsa erlenda veðmálasíðu Innlent Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Erlent Foreldrar verði að halda ró sinni þegar kynferðisbrot eru rædd við börn Innlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Stefán Kristjánsson er látinn Innlent Barnið lét foreldra sína vita af brotinu Innlent Fleiri fréttir Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Sjá meira