Áfengur bjór fór óvart í matvörubúðir 9. júlí 2009 05:15 Seldur með mjólk Bjórinn fór í sölu í nokkrum matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu. Fréttablaðið / valli
Eitt vörubretti af áfengum Thule-bjór í hálfs lítra dósum barst fyrir mistök frá Vífilfelli í nokkrar matvöruverslanir um eða eftir helgi í stað léttöls. Eitthvað af bjórnum seldist úr verslunum, samkvæmt heimildum Fréttablaðsins. Mistökin uppgötvuðust á mánudag. Guðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri hjá Vífilfelli, segir að í kjölfarið hafi bjórnum verið safnað saman. „Bjórinn og léttölið er geymt hvort á sínum stað hjá okkur inni á lager þannig að þetta á ekki að geta gerst,“ segir Guðjón. Líklega orsakist mistökin af því hversu mikið af óreyndu sumar-starfsfólki er nú við störf. Bjórinn hafi viðkomu hjá Aðföngum, sem kemur honum í verslanir, og starfsmenn Aðfanga hafi því líka sofið á verðinum. Bjórdósirnar bera annað strikamerki en léttölsdósirnar og finnast ekki í kerfum matvöruverslananna. Guðjón segir því nær útilokað að nokkuð hafi selst af bjórnum úr verslunum. Heimildir Fréttablaðsins herma hins vegar að í minnst einni verslun hafi starfsmenn haldið að strikamerkin væru gölluð og fundið leið fram hjá vandanum. Nokkuð hafi verið selt úr þeirri verslun. Guðjón segir svona nokkuð ekki hafa hent í áraraðir og að farið verði yfir verkferla í fyrirtækinu til að fyrirbyggja að þetta gerist aftur.
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Fleiri fréttir Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Íslandsbanki hækkar vexti Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sjá meira