Erlent

Allt að 50.000 unglingar í klíkum

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Klútavafin mussumenni á breskri götu.
Klútavafin mussumenni á breskri götu. MYND/Telegraph/Peter Payne

Allt að 50.000 breskir unglingar tilheyra einhvers konar glæpagengjum og -klíkum. Þetta kemur fram í skýrslu breskra félagsmálayfirvalda sem krefjast aðgerða yfirvalda þegar í stað til þess að stemma stigu við þróuninni.

Meðal þeirra lausna sem velt hefur verið upp er að taka upp stefnu bandarískra stjórnvalda sem byggir á hörðum aðgerðum gegn glæpagengjum og forsprökkum þeirra. Tuttugu og sjö unglingar voru myrtir í London í fyrra og er talið að helmingur morðanna hafi tengst klíkuátökum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×