Erlent

Grunaður um að myrða móður sína

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Algeng sjón í Nørrebro-hverfinu þar sem jafnan er skammt milli stórra verka og illra.
Algeng sjón í Nørrebro-hverfinu þar sem jafnan er skammt milli stórra verka og illra.

Kona fannst látin í íbúð í Nørrebro-hverfinu í Kaupmannahöfn í morgun og er talið að hún hafi verið myrt. Sonur hinnar látnu hefur verið handtekinn, grunaður um verknaðinn, en það var hann sem hafði samband við lögreglu og greindi frá því að lík væri í íbúðinni. Áverkar á líkinu benda til þess að konan hafi fengið þungt högg í andlitið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×