Erlent

Albínóamorðingjar dæmdir til dauða

Albínóar. Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint.
Albínóar. Athugið að myndin tengist ekki fréttinni beint.

Fjórir karlmenn í Tansaníu hafa verið dæmdir til dauða fyrir að myrða albínóa. Morðið var framið á síðasta ári en morðið er eitt af fimmtíu albínóamorðum sem hafa verið framin undanfarin ár í Tansaníu.

Ástæðan er sú að galdralæknar skera höfuð líkanna og hendur af og búa til seyði sem á að færa þeim sem drekkur mikla gæfu. Drykkurinn er afar eftirsóttur og er seldur á þúsundi dollara þar í landi.

Fyrir nokkrum mánuðum voru aðrir menn dæmdir til dauða fyrir að myrða albínóa-barn en það var í fyrsta skiptið sem svo þungur dómur féll fyrir albínóamorð.

Samkvæmt BBC þá eru íbúar Tansaníu fegnir að slíkir dómar séu að falla í ljós alvarleika brotanna.

Þá segir ennfremur í greininni að þúsundir albínóa í Tansaníu séu verulega uggandi vegna málanna.

Mennirnir fjórir verða hengdir vegna glæpa sinna




Fleiri fréttir

Sjá meira


×