Alheimsfaraldi lýst yfir vegna kerfisgalla Guðjón Helgason. skrifar 12. júní 2009 12:14
Kerfisgalli er ástæðan fyrir því að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur orðið að lýsa yfir alheimsfaraldri vegna fremur vægrar flensu. Þetta er mat bandarísks sérfræðings í smitsjúkdómum. Laurie Garrett er verðlaunuð fyrir vísindafréttaskrif sín en hún líffræðingur, sérmenntuð í veirufræðum. Hún er sérfræðingur í heilbrigðismálum við sérfræðingaráð Concil of Foreign Relations í Bandaríkjunum. Í grein hennar í New York Times í gær segir hún að Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hafi málað sig út í horn með stigskiptu viðvörunarkerfi sínu sem faraldursviðvaranir séu byggðar á. Ekki sé samræmi milli þess hversu hratt flensur smitist og hversu hættulegar þær séu. Í tilviki svínaflensunnar ráði smithraði því að lýst hafi verið yfir efsta viðvörunarstigi í gær. Garrett segir svínaflensuna ekki sérlega hættulega, meinvirkni hennar virðist enn sem komið er mun minni en þegar horft sé til venjulegrar, árstíðarbundinnar flensu. Aðeins ríflega hundrað dauðsföll vegna hennar eru staðfest sem mun töluvert minna en ár hvert af völdum venjulegrar flensu. Garrett vekur athygli á því að erfitt sé að greina hversu hratt flensan hafi smitast þar sem hún greindist fyrst, í Mexíkó þar sem flestir hafi látist, og hve margir hafi í raun veikst. Vel gæti verið að hlutfall látinna sé lágt miðað við hve margir hafi veikst. Garrett tekur fuglaflensuna sem dæmi en hún dró um sextíu og þrjú prósent smitaðra til dauða en var langt frá því að smitast jafn hratt eða auðveldlega milli fólks og svínaflensan. Í Bandaríkjunum sé stigakerfi eftir því hversu skæð flensur séu fólki og ekki sé farið á fimmta stig í þeim skala nema tvö prósent sýktra láti lífið. Svínaflensan sé langt undir fyrsta stigi þess skala. Það er mat Garrett að markað þurfi nýja stefnu og þróa sveigjanlegt viðvörunarkerfi sem taki mið af fleiri þáttum en smithraða.
Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Erlent Fleiri andvígir aðild nú en í fyrra Innlent Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Innlent Halla Bergþóra nýr ríkislögreglustjóri Innlent Ingimar er bæjarstjóraefni D-listans í í Hveragerði Innlent Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent Fleiri fréttir Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Sjá meira
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent
Dómur yfir Helga Bjarti: Fara þyrfti varlega í að draga ályktanir út frá framburði drengsins Innlent