Lyfjapróf niðurskurðartæki Breta í kreppunni Atli Steinn Guðmundsson skrifar 18. maí 2009 08:27 Bandarísk auglýsing frá UriTox sem sendir búnað til lyfjaprófana um öll Bandaríkin. Sendingarkostnaður fellur niður ef pantað er fyrir meira en 50 dollara.
Lyfjapróf eru að verða æ algengari á breskum vinnustöðum í kreppunni. Þetta má merkja af því að eiturlyfjaráðgjafarmiðstöðinni Release bárust fjórfalt fleiri fyrirspurnir um lyfjapróf á vinnustöðum á fyrsta fjórðungi þessa árs en á sama tíma í fyrra. Release sérhæfir sig í ráðgjöf um lög og reglur í tengslum við eiturlyf og eins því hve langt vinnuveitendur mega ganga í aðgerðum sínum vegna hugsanlegrar fíkniefnaneyslu starfsfólks. Einnig hefur verið nóg að gera hjá Concateno, fyrirtæki sem annast lyfjapróf á vinnustöðum. Þetta tengja menn við kreppu og erfitt árferði hjá fyrirtækjum en hvernig er sú tenging komin til? Jú, þetta er í rauninni lúmsk sparnaðaraðgerð þar sem bresk lög gera ráð fyrir að hægt sé að segja starfsmanni upp vinnu án fyrirvara og einnig án þess að greiddur sé uppsagnarfrestur verði hann uppvís að fíkniefnaneyslu í vinnunni. Release greinir frá því að helsta breytingin nú sé, að í stað þess að lyfjaprófin séu að mestu bundin við hættuleg störf þar sem menn stjórni stórvirkum vinnuvélum og öðrum háskalegum tólum og tækjum, séu það nú skrifstofu- og verslunarstörfin sem vaði í lyfjaprófum og síðast, en alls ekki síst, bankar landsins.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Fleiri fréttir Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Sjá meira