Erlent

N-Kórea: Fleiri eldflaugum skotið á loft

Kjarnorkutilraunir N-Kóerumanna hafa víða verið fordæmdar. Þeim var meðal annars mótmælt í Suður-Kóreu í dag.
Kjarnorkutilraunir N-Kóerumanna hafa víða verið fordæmdar. Þeim var meðal annars mótmælt í Suður-Kóreu í dag. Mynd/AP
Norður Kóreumenn halda áfram að gera tilraunir með skammdrægar eldflaugar. Í kvöld var enn einni eldflaug skotið í loft en fyrr í dag var tveimur flaugum skotið á loft.

Norður Kóreumenn segjast búnir undir átök við Bandaríkjamenn. Þeir fögnuðu í dag kjarnorkutilraun sinni frá í gær.

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdi í gærkvöldi þá ákvörðun Norður-Kóreumanna að sprengja hátt í 20 kílótonna kjarnorkuvopn neðanjarðar í tilraunaskyni. Ályktun er í undirbúningi og mögulega refsiaðgerðir.

Ekki virðist það hræða ráðamenn í Pyongyang en efnt var til hersýningar í borginni í dag til að fagna kjarnorkusprengingunni.

Norður-Kóresk stjórnvöld efndu til hersýningar í dag til að fagna tilrauninni. Æðsti leiðtoginn, sjálfur Kim Jong-il, lét þó ekki sjá sig.

Norður-Kóreumenn höfðu þá einnig skotið tveimur skammdrægum eldflaugum á loft í tilraunaskyni að sögn suður-kóreskra fréttamiðla.

Norður-Kóreumenn hafa ekki staðfest þetta en í yfirlýsingu segja ráðamenn í Pyongyang að þeir búi sig undri árás frá Bandaríkjunum og ríkisstjórn Baracks Obama, Bandaríkjaforseta, sé jafn fjandsamleg Norður-Kóreu og fyrri bandarískar stjórnir.

Suður-Kóreumenn hafa tilkynnt að þeir ætli að taka þátt í alþjóðlegu samstarfi undir forystu Bandaríkjamanna um að hefta útbreiðslu ólöglegra vopna. Það felur í sér að hægt er að leita fyrirvaralaust um borð í skipum sem sigla í lögsögu þeirra. Norður-Kóreumenn hafa sagt þátttöku í því samstarfi jafngilda stríðsyfirlýsingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×