Erlent

Stakk föður sinn til bana

Atli Steinn Guðmundsson skrifar

Tæplega sextugur maður fannst stunginn til bana í íbúð við Frimestervej í Kaupmannahöfn síðdegis í gær. Sonur hans á fertugsaldri var handtekinn á staðnum og hefur játað á sig verknaðinn.

Fréttastofan greindi frá því í gær að annar maður var handtekinn í Nørrebro-hverfinu snemma í gærmorgun, grunaður um að hafa orðið móður sinni að bana. Sá hafði sjálfur samband við lögreglu og tilkynnti um lík í íbúðinni. Í hvorugu tilfellinu hefur tilefni verknaðarins verið upplýst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×