Erlent

Tveir handteknir vegna hnífstungu í London

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Fórnarlambið, Steven Lewis.
Fórnarlambið, Steven Lewis. MYND/Telegraph

Tveir unglingspiltar, 16 og 17 ára gamlir, voru handteknir í London í morgun, grunaðir um að hafa orðið þeim þriðja, 15 ára gömlum, að bana með hnífstungu laust fyrir miðnætti á laugardagskvöldið.

Atvikið varð á fjáröflunardansleik kirkju heilags Filippusar. Þetta er fyrsta banvæna hnífstunguárásin í London á árinu en tæplega 30 unglingar voru stungnir til bana í borginni á síðasta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×