Beresovskí segir Rússa hafa þvegið peninga á Íslandi 13. febrúar 2009 12:14 Boris Beresovskí.
Rússneskir auðmenn hliðhollir Pútín forsætisráðherra Rússlands hafa stundað peningaþvætti á Íslandi og í reynd keypt landið með illa fengnu fé sínu. Þetta fullyrðir Boris Beresovskí, landflótta rússneskur auðmaður og svarinn óvinur Pútíns forsætisráðherra Rússlands. Íslensk stjórnvöld vísa þessu á bug. Landflótta rússneski auðjöfurinn Boris Beresovskí var gestur í þætti viðskiptafréttamannsins Jeff Randall á Sky News fréttastöðinni í gærkvöldi. Þar fullyrti hann að auðmenn í Rússlandi sem væru hliðhollir núverandi ráðamönnum hefðu á undanförnum árum ná til sín umtalsverðu fé í heimalandinu og notað það síðan til fjárfestinga á vesturlöndum. Peningana hefðu þeir notað til að kaupa fjölmörg fyrirtæki. Tiltók hann þá sérstaklega að Ísland hefði verið notað í þessum tilgangi og sagði áform Rússa um að lána Íslendingum fé vegna bankahrunsins sem dæmi um tilraun þeirra til að þvo illa fengið fé og ná áhrifum í Atlantshafsbandalagsríki. Beresovskí sagði þetta hafa verið vegna þess að Ísland væri ekki í Evrópusambandinu og því giltu ýmsar reglur sambandsins ekki þar. Í tilkynningu frá íslenska utanríkisráðuneytinu sem lesin var upp í þætti Randall var þessu vísað á bug. Bent var á að lán frá Rússum hefði ekki verið afgreitt og auk þessu giltu allar reglur Evrópusambandsins um fjármagnsflutninga hér. Beresovskí var til skamms tíma einn ríkasti maður Rússlands en hann var í innstahring meðal ráðamanna og vina Borisar Jeltsíns fyrrverandi Rússlandsforseta. Beresovskí hefur verið í útlegð í Bretlandi síðan 2001 en þar hefur hann fengið pólitískt hæli. Beresovskí flúði eftir að honum og Vladimir Putin fyrrverandi forseta og núverandi forsætisráðherra lenti saman. Auðmaðurinn er eftirlýstur fyrir fjársvik og pólitíska spillingu í heimalandi sínu.
Mest lesið Grjóthart nei hjá dúxinum í Yale Innlent Landsmenn allir harmi slegnir Innlent Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Erlent Leituðu ítrekað í geymslur stofnunar Innlent „Kannski verður maður grátandi hálft hlaupið, en þá bara er það þannig“ Innlent Dauðbrá og varð öskureið þegar hún sá sjálfa sig í gervigreindarmyndbandi Innlent Erik Menendez fær ekki reynslulausn Erlent Áfall fyrir RIFF Innlent Aðstoðar allt að fimmtán ára gömul börn að hætta með bleyju Innlent Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Erlent Fleiri fréttir Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Segist vilja komast til himna Ísraelar taki ekki annað í mál en lausn allra gísla Bauð Selenskí til Moskvu Segir ásakanir Evrópu barnalegar Þingmaður sagður hafa svipt sig lífi í finnska þinghúsinu Sjá meira