Erlent

Tæplega 50 fórust í flugslysi í New York

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Húsið í ljósum logum eftir að flugvélin skall á því.
Húsið í ljósum logum eftir að flugvélin skall á því. MYND/WKBW

Tæplega 50 manns sem voru um borð í farþegaflugi Continental-flugfélagsins eru látnir eftir að vél félagsins skall niður á íbúðarhús og sprakk í loft upp í úthverfi borgarinnar Buffalo í New York-ríki í nótt.

Um borð í vélinni, sem var af gerðinni Bombardier Dash 8, voru 48 manns, að áhöfn meðtalinni. Vitað er um tvo menn sem slösuðust á jörðu niðri og lést annar þeirra af sárum sínum. Ekki er enn vitað hvað olli slysinu.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×