Erlent

Barðist við Talibana í bleikum nærbuxum og inniskóm

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Mynd sem birtist af hermanninum Zachary Boyd á forsíðu New York Times. Boyd er augljóslega lengst til vinstri á myndinni. Hann óttaðist mjög að vera rekinn úr hernum sæi Barack Obama hann í bardaga án einkennisbúnings en Robert Gates segir það ekki vera á döfinni.
Mynd sem birtist af hermanninum Zachary Boyd á forsíðu New York Times. Boyd er augljóslega lengst til vinstri á myndinni. Hann óttaðist mjög að vera rekinn úr hernum sæi Barack Obama hann í bardaga án einkennisbúnings en Robert Gates segir það ekki vera á döfinni. MYND/New York Times

Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, fór lofsamlegum orðum um bandarískan hermann í Afganistan sem kom hlaupandi beint úr rúminu fyrr í mánuðinum og réðst til atlögu við Talibana sem gerðu árás á herstöðina. Í stað hefðbundins herbúnings var maðurinn eingöngu klæddur bleikum boxer-nærbuxum og inniskóm og vakti uppákoman athygli fjölmiðla sem birtu myndir af tiltækinu. Gates sagði það bera vott um mikið hugrekki að ráðast gegn Talibönum í nærbuxum og inniskóm einum klæða og segist gjarnan vilja hitta hermanninn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×