Þíða í samskiptum Rússa og Bandaríkjamanna 29. janúar 2009 12:33 Barack Obama Bandaríkjaforseti.
Útlit er fyrir þíðu í samskiptum Bandaríkjamanna og Rússa eftir forsetaskipti vestanhafs. Rússar eru sagðir ætla að fresta flugskeytavörnum sínum þar sem ný Bandaríkjastjórn hafi uppi breytta stefnu í eldflaugavörnum í Austur-Evrópu. Interfax fréttastofan rússneska hefur í morgun eftir ónafngreindum heimildarmanni í rússneska hernum að Rússar hafi ákveðið að fresta því að koma fyrir eldflaugum í Kaliningrad. Það ætluðu þeir að gera vegna áforma Bandaríkjamanna um að koma upp eldflaugavarnarkerfi í Póllandi og Tékklandi. Rússnesk stjórnvöld hafa ekki staðfest þetta en sérfróðir segja ráðamenn í Kreml oft nota Interfax til að velta fram hugmyndum og sjá hvernig tekið verði í þær. Stjórnmálaskýrendur segja Rússa þarna að rétta fram sátthönd til Baracks Obama nýs Bandaríkjaforseta en hann og Dímítrí Medvedev, Rússlandsforseti, ræddust við í síma í fyrradag. Rússar hafa litið á eldflaugavarnarkerfið sem beina ógn við sig þó stjórn George Bush fyrrverandi forseta hafi sagt að það yrði sett upp til að verjast ógn frá útlagaríkjum á borð við Íran. Forsetarnir voru sammála um að það yrði að bæta samskipti ríkjanna. Interfax hefur eftir heimildarmanni sínum að í samtali forsetanna hafi komið fram að ný Bandaríkjastjórn ætlaði að fara sér hægt hvað varðaði að hrinda áformum um eldflaugavarnarkerfið í gang. Þess vegna ætli Rússar sé að fresta því að flytja eldflaugar til Kaliningrad. Medvedev og Obama hittast fyrst formlega á fundi þegar þeir sækja báðir fund tuttugu ríkja og alþjóðastofnana í Lundúnum í byrjun apríl. Þá verða samskipti ríkjanna rædd nánar.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Sjá meira