Flugstjórinn gat varla talað Óli Tynes skrifar 3. febrúar 2009 17:17 Boeing þota frá Aeroflot.
Farþegum í rússnesku Aeroflot vélinni leist ekki á blikuna þegar þeir sáu flugstjórann sem átti að fljúga með þá frá Moskvu til New York í desember síðastliðnum. Augu hans voru blóðhlaupin og hann var óstöðugur á fótunum. Þegar hann byrjaði að segja farþegunum frá fluginu drafaði hann svo að það var varla hægt að skilja hann. Það tók hann þrjár tilraunir að koma því út úr sér hvað flugið til New York tæki langan tíma. Meðan flugstjórinn drafaði reyndu farþegarnir að tala við flugfreyjur sem vildu ekkert á þá hlusta. Þær tóku ekki í mál að flugstjórinn væri undir áhrifum. Ein þeirra sagði raunar að það skipti ekki máli þótt flugstjórinn væri drukkinn. Hann þyrfti bara að ýta á einn hnapp og þá flygi vélin sér sjálf. Það versta sem gæti komið fyrir væri að hann dytti um eitthvað í stjórnklefanum. Farþegarnir vildu ekki sætta sig við þetta og eftir þriggja klukkustunda hávaða rifrildi var loks skipt um alla áhöfnina. Rússneska blaðið Moscow Times hefur reynt að fylgja málinu eftir en hefur fengið loðin svör frá Aeroflot. Fyrst var sagt að flugstjórinn hafi hugsanlega fengið hjartaáfall fyrir flugið. Þegar blaðið reyndi síðar að ná í flugstjórann sjálfan var sagt að hann væri til meðferðar vegna óskilgreinds sjúkdóms, og ekki væri víst að hann flygi aftur. Áttatíu og átta manns fórust með annarri flugvél frá Aeroflot í september síðasliðnum. Rannsókn leiddi í ljós að flugstjórinn hafði verið drafandi drukkinn.
Mest lesið Bauð manni að gista, batt hann við stól og lét hann drekka úr skál á gólfinu Innlent Sundlaugargestur handtekinn Innlent Jarðskjálfti við Langjökul: „Þetta er sá stærsti síðan árið 2007“ Innlent Blaðaviðtal við Matthías lagt fram í gögnum málsins Innlent Ekkert sem bendi til þess að um sé að ræða óvinveitt geimskip Innlent Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent „Pútín fékk það út úr þessum fundi sem hann vildi“ Innlent Kærður fyrir að taka myndband af vettvangi slyss Innlent Íþróttafélag kært fyrir að bjóða upp á áfengi utandyra Innlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Fleiri fréttir Evrópuleiðtogar fylkja liði í Hvíta húsið Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sjá meira