Bæjarstjóralaust í Grindavík - skipta með sér verkum 26. nóvember 2009 16:06 Jóna Kristín Þorvaldsdóttir lætur af starfi bæjarstjóra Grindavíkur um mánaðamótin. Þar sem nokkrir mánaðir eru til kosninga verður ekki ráðið í stöðuna í hennar stað.
Bæjarstjóralaust verður í Grindavík eftir að Jóna Kristín Þorvaldsdóttir lætur af starfi bæjarstjóra um mánaðamótin ef hugmyndir bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins ná fram að ganga. Oddvitar meirihlutans og fjármálastjórinn bæjarfélagsins munu skipta með sér verkum. Petrína Baldursdóttir, oddviti framsóknarmanna og formaður bæjarráðs, segir meirihlutann ekki hafa gengið frá samkomulagi um hvernig stjórn bæjarfélagsins verði háttað eftir að Jóna Kristín hættir. Það verði gert á allra næstu dögum. Petrína segir að í ljósi þess hve skammt er í kosningar geri hugmyndir framsóknarmanna ráð fyrir því að í stað að ráða nýjan bæjarstjóra muni Jón Þórisson, fjármálastjóri Grindavíkur, taki að sér aukinn verkefni sem snúa að rekstri bæjarfélagsins. Auk þess muni Hörður Guðbrandsson, forseti bæjarstjórnar, og hún sem formaður bæjarráðs skipta með sér verkum sem snúa að pólitíkinni. Mikill óróleiki hefur verið í bæjarpólitíkinni í Grindavík frá kosningunum vorið 2006. Skipt var um meirihluta sumarið 2008 og í framhaldinu tók Samfylkingarkonan Jóna Kristín, við starfi bæjarstjóra. Áður en hún settist í bæjarstjórn starfaði hún sem prestur í bæjarfélaginu. Um næstu mánaðarmót tekur Jóna Kristín við Kolfreyjuprestakalli á Austurlandi. Við meirihlutaskiptinn í fyrra lét Ólafur Örn Ólafsson af embætti bæjarstjóra. Starfslokasamningur hans vakti talsverða athygli en samningurinn tryggði Ólafi meðal annars 1,2 milljónir króna í mánaðarlaun út kjörtímabilið auk sex mánaða eftir að því líkur í maí á næsta ári. Meirahlutasamstarf í bæjarstjórn Grindavíkur er með Samfylkingu og Framsóknarflokki með stuðningi Vinstri grænna.
Tengdar fréttir Bæjarstjóri með hjartsláttartruflanir Jóna Kristín Þorvaldsdóttir bæjarstjóri í Grindavík var lögð inn á Landspítalann í gær eftir að hafa fengið hjartsláttartruflanir. Hún fékk að fara heim í dag en var fyrirskipað af læknum að taka því rólega á næstunni og verður undir eftirliti. 22. september 2009 14:54 Bæjarstjórinn í Grindavík: Óróleikinn auðvitað slæmur „Óróleikinn er auðvitað afar slæmur og það er ekki síst íbúanna og byggðarinnar vegna,“ segir Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, bæjarstjóri í Grindavík, um stöðu mála í bæjarfélaginu en mikill óróleiki hefur verið í bæjarpólitíkinni í Grindavík undanfarið ár. 15. júní 2009 16:30 VG ver minnihlutastjórnina í Grindavík Bæjarfulltrúar Vinstri grænna, Samfylkingar og Framsóknarflokksins í Grindavík hafa undirritað samkomulag sem felur í sér að fulltrúar VG verja minnihlutastjórn Samfylkingar og Framsóknar með hlutleysi sínu út kjörtímabilið. Þar með er þeirri óvissu sem skapaðist þegar að annar af tveimur bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar gekk í VG lokið. 12. júní 2009 16:28 Útúrsnúningar og aulaafsakanir í Grindavík Sjálfstæðisfélag Grindavíkur sá ástæðu til að snupra oddvita sinn í bæjarstjórn vegna skrifa hans á heimasíðu Grindavíkurbæjar. Pistillinn er afar harðorður í garð fráfarandi bæjarstjóra þar sem bæjarstjórinn er meðal annars sagður hafa verið með útúrsnúninga og aulaafsakanir í fjölmiðlum. Búið er að fjarlægja pistillinn af vef bæjarfélagins og auk þess hefur honum verið talsvert breytt á heimasíðu oddvitans. 10. september 2009 12:20 Síðasti bæjarstjórnarfundur bæjarstjórans Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, bæjarstjóri í Grindavík, sat sinn síðasta bæjarstjórnarfund í gærkvöldi en hún tekur við sem sóknarprestur í Kolfreyjustaðarprestakalli um næstu mánaðarmót. Ekki hefur verið greint frá því hver verður eftirmaður Jónu Kristínar í embætti bæjarstjóra. 12. nóvember 2009 13:48 Bæjarstjóra langar í brauð Grindavík Bæjarstjórinn í Grindavík, Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, hefur sótt um embætti sóknarprests í Kolfreyjustaðarprestakalli í Austfjarðaprófastsdæmi. 19. ágúst 2009 02:00 Óstarfhæf bæjarstjórn í Grindavík Meirihlutinn í bæjarstjórn Grindavíkur er orðinn að minnihlutastjórn eftir að Samfylkingarmaðurinn Garðar Páll Vignisson sagði sig úr Samfylkingunni og gekk yfir í Vinstri græna. 11. júní 2009 14:54 Jóna Kristín afsalar sér biðlaunum Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, fráfarandi bæjarstjóri í Grindavík, mun afsala sér rétti til biðlauna þegar hún lætur af embætti bæjarstjóra um mánaðarmótin nóvember-desember. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hver eftirmaður hennar verður en það skýrist fljótlega. 18. september 2009 13:39 Valnefndin vill Jónu Kristínu Valnefnd Kolfreyjustaðarprestakalls ákvað á fundi sínum fimmtudaginn 27. ágúst að leggja til að sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir verði skipaður sóknarprestur í Kolfreyjustaðarprestakalli. Embættið veitist frá 1. september næstkomandi. 28. ágúst 2009 14:02 Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Minnst 27 létust þegar eldur kviknaði á bar í Taílandi Erlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Níu ára stúlka meðal þeirra sem fórust og árásir enn nær daglegt brauð Erlent Fleiri fréttir Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Sjá meira
Bæjarstjóri með hjartsláttartruflanir Jóna Kristín Þorvaldsdóttir bæjarstjóri í Grindavík var lögð inn á Landspítalann í gær eftir að hafa fengið hjartsláttartruflanir. Hún fékk að fara heim í dag en var fyrirskipað af læknum að taka því rólega á næstunni og verður undir eftirliti. 22. september 2009 14:54
Bæjarstjórinn í Grindavík: Óróleikinn auðvitað slæmur „Óróleikinn er auðvitað afar slæmur og það er ekki síst íbúanna og byggðarinnar vegna,“ segir Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, bæjarstjóri í Grindavík, um stöðu mála í bæjarfélaginu en mikill óróleiki hefur verið í bæjarpólitíkinni í Grindavík undanfarið ár. 15. júní 2009 16:30
VG ver minnihlutastjórnina í Grindavík Bæjarfulltrúar Vinstri grænna, Samfylkingar og Framsóknarflokksins í Grindavík hafa undirritað samkomulag sem felur í sér að fulltrúar VG verja minnihlutastjórn Samfylkingar og Framsóknar með hlutleysi sínu út kjörtímabilið. Þar með er þeirri óvissu sem skapaðist þegar að annar af tveimur bæjarfulltrúum Samfylkingarinnar gekk í VG lokið. 12. júní 2009 16:28
Útúrsnúningar og aulaafsakanir í Grindavík Sjálfstæðisfélag Grindavíkur sá ástæðu til að snupra oddvita sinn í bæjarstjórn vegna skrifa hans á heimasíðu Grindavíkurbæjar. Pistillinn er afar harðorður í garð fráfarandi bæjarstjóra þar sem bæjarstjórinn er meðal annars sagður hafa verið með útúrsnúninga og aulaafsakanir í fjölmiðlum. Búið er að fjarlægja pistillinn af vef bæjarfélagins og auk þess hefur honum verið talsvert breytt á heimasíðu oddvitans. 10. september 2009 12:20
Síðasti bæjarstjórnarfundur bæjarstjórans Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, bæjarstjóri í Grindavík, sat sinn síðasta bæjarstjórnarfund í gærkvöldi en hún tekur við sem sóknarprestur í Kolfreyjustaðarprestakalli um næstu mánaðarmót. Ekki hefur verið greint frá því hver verður eftirmaður Jónu Kristínar í embætti bæjarstjóra. 12. nóvember 2009 13:48
Bæjarstjóra langar í brauð Grindavík Bæjarstjórinn í Grindavík, Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, hefur sótt um embætti sóknarprests í Kolfreyjustaðarprestakalli í Austfjarðaprófastsdæmi. 19. ágúst 2009 02:00
Óstarfhæf bæjarstjórn í Grindavík Meirihlutinn í bæjarstjórn Grindavíkur er orðinn að minnihlutastjórn eftir að Samfylkingarmaðurinn Garðar Páll Vignisson sagði sig úr Samfylkingunni og gekk yfir í Vinstri græna. 11. júní 2009 14:54
Jóna Kristín afsalar sér biðlaunum Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, fráfarandi bæjarstjóri í Grindavík, mun afsala sér rétti til biðlauna þegar hún lætur af embætti bæjarstjóra um mánaðarmótin nóvember-desember. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hver eftirmaður hennar verður en það skýrist fljótlega. 18. september 2009 13:39
Valnefndin vill Jónu Kristínu Valnefnd Kolfreyjustaðarprestakalls ákvað á fundi sínum fimmtudaginn 27. ágúst að leggja til að sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir verði skipaður sóknarprestur í Kolfreyjustaðarprestakalli. Embættið veitist frá 1. september næstkomandi. 28. ágúst 2009 14:02