Réttarhöldum yfir bloggara í Kína frestað um óákveðinn tíma Atli Steinn Guðmundsson skrifar 11. febrúar 2009 07:56 Huang Qi. MYND/Sameinuðu þjóðirnar
Réttarhöldum yfir kínverskum bloggara hefur verið frestað um óákveðinn tíma eftir að bandarísk stjórnvöld fóru þess á leit að fulltrúi þeirra yrði viðstaddur réttarhöldin. Huang Qi hefur ekki haft annað útsýni en veggi kínversks fangaklefa síðan í júní í fyrra en þá var hann handtekinn fyrir að hafa í sínum vörslum efni sem flokkaðist sem ríkisleyndarmál og birta það á bloggsíðu sinni. Ríkisleyndarmálið svonefnda eru málsgögn og kærur nokkurra foreldra sem misstu börn sín í jarðskjálftanum í Sichuan-héraði 12. maí í fyrra þegar nokkrir barnaskólar hrundu til grunna. Síðar kom í ljós að skólabyggingarnar stóðust engar byggingaöryggiskröfur og lögðu fjölskyldurnar því upp í það óralanga og hálfvonlausa ferðalag sem málsókn á hendur stjórnvöldum Alþýðulýðveldisins er. Huang Qi kynntist fólkinu þegar hann tók ásamt fjölda manns þátt í því að bjarga fórnarlömbum jarðskjálftans úr húsarústum dagana eftir skjálftann. Réttarhöld yfir honum áttu að hefjast 3. febrúar en var frestað um óákveðinn tíma og er það mál manna að það sé engin tilviljun að sú frestun er ákveðin örskömmu fyrir heimsókn bandaríska utanríkisráðherrans Hillary Clinton til Asíu.
Mest lesið Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Erlent Tókst á við umdeilda rabbínann: „Þú ert hættulegur maður“ Innlent Íbúar flúðu undan tónlistarhátíð Bjarkar Innlent Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Erlent Steingrímur segir nei vegna reynslu af fyrri aðildarviðræðum Innlent Rafflugvél sem gæti hentað Íslandi flýgur í fyrsta sinn Innlent Mangione sagður ætla að játa Erlent Forskot Já-hliðarinnar mælist minna Innlent Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Erlent Sé verið að senda röng skilaboð til „kaldrifjaðra morðingja“ Innlent Fleiri fréttir Komu í veg fyrir launmorð á Bandaríkjamanni í Varsjá Hafa áhyggjur af geðheilsu þúsunda sjóliða Úkraínumenn gáfu Kananum á baukinn Mangione sagður ætla að játa Mannskæð sprenging í stærstu höfn Evrópu Sagður hafa setið fyrir foreldrum sínum áður en hann myrti þau Senda inn liðsauka þar sem landtökumenn sitja um heimili Palestínumanna Handtóku og ákærðu baráttukonu gegn Kú Klúx Klan Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Leavitt hættir hjá Trump ICE-liðar fá rafmagnshanska Létu sprengjum rigna á rússneska flotastöð við Svartahaf Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Farage etur kappi við grínara og aðra furðufugla Blaðamenn og aðrir farþegar notaðir sem tálbeita? Þúsunda saknað og tíminn að renna út Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Pútín vildi ekkert fyrir Bandaríkjamann í rússnesku fangelsi Norskir nei-sinnar bæta við sig Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Sjá meira