Fjórða hver lifrarígræðsla vegna ofdrykkju Atli Steinn Guðmundsson skrifar 16. febrúar 2009 07:35 Lifrarígræðsla undirbúin á sjúkrahúsi í Ástralíu. MYND/Austin.org.au
Ein af hverjum fjórum lifrum, sem græddar eru í fólk í Bretlandi, er til bjargar þeim sem eyðilagt hafa í sér lifrina með drykkju. Þetta sýna opinberar tölur í Bretlandi svart á hvítu. Tímabilið frá marslokum 2007 til jafnlengdar 2008 fór 151 lifur af alls 623 ígræddum í sjúklinga sem höfðu átt við drykkjutengdar lifrarskemmdir að stríða. Síðasta áratuginn hefur slíkum tilfellum fjölgað um meira en 60 prósent og nú er svo komið að bresku læknasamtökunum stendur hreint ekki á sama um þróunina. Dr. Tony Calland, formaður siðanefndar samtakanna, minnir í viðtali við Observer á þá staðreynd að breskir skurðlæknar hafi fullan rétt til að binda lifrarígræðslu þeim skilyrðum að áfengisdrykkju verði hætt alveg eða henni stillt verulega í hóf með nýju lifrina innanborðs. Hann segir það vera læknisfræðilega ákvörðun mun frekar en siðferðilega að neita sjúklingi um aðgerð liggi ekki fyrir hreint og klárt loforð af hans hálfu um að snúa baki við Bakkusi gamla. Sennilega eru þetta orð í tíma töluð þar sem tíðni dauðsfalla af völdum skorpulifrar í Bretlandi er nú komin yfir Evrópumeðaltalið. Í nýlegri könnun læknasamtakanna voru 94 prósent breskra lækna á því að ekki ætti að heimila lifrarígræðslu nema sjúklingurinn lofaði að láta af drykkju.
Mest lesið Vaktin: Austanbylur annan í páskum Veður „Þetta er algjör hetjudáð að fara þarna upp á“ Innlent Rúta valt á Kjalarnesi Innlent Stærðar gámur valt af Fjósakletti og lenti á hvolfi Innlent Vanhæfi fyrirtækisins til að sinna skyldum sínum sé algert Innlent Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Erlent Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Erlent Bíll við bíl á Hellisheiði eftir að heyrúllur féllu á veginn Innlent Virkjuðu flugslysaáætlun á Akureyri Innlent Lilja mætt aftur á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Einum úr áhöfninni bjargað Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Gerði grín að Macron og eiginkonu hans með frönskum hreim Íranir verði sendir aftur til steinaldar en viðræður standi yfir Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Sjálfsprengidrónum rignir yfir bæði Úkraínu og Rússland Áætlunarflug prófað á rafmagnsflugvélum Sjá meira