Sekt og fangelsi fyrir að kvarta yfir sjúkrahúsi Atli Steinn Guðmundsson skrifar 23. júní 2009 08:12 Unnið að gerð veggspjalda fyrir forsetakosningarnar í Indónesíu sem haldnar verða 8. júlí. Susilo Bambang Yudhoyono forseti, sem sækist eftir endurkjöri, segir að indónesísk lög verði að vera gegnsæ og réttlát. MYND/Reuters
Mál indónesískrar móður sem var fangelsuð og sektuð fyrir að senda tölvupóst hefur vakið harðar deilur innan stjórnkerfisins þar í landi. Prita Mulyasari vann sér ekki annað til saka en að senda tölvupóst til nokkurra vina og ættingja þar sem hún kvartaði yfir lélegri þjónustu á einkasjúkrahúsi sem hún leitaði til í veikindum. Pósturinn lak út og sjúkrahúsið lögsótti Mulyasari og sakaði hana um að rægja lækna og sérfræðilið sjúkrahússins að ósekju. Indónesísk lög eru með þeim flóknustu sem finnast á byggðu bóli og margur lagabókstafurinn þar í landi er síðan á hollenska nýlendutímanum. Þá er spilling mikil innan stjórnkerfisins og ekkert launungarmál að þeir sem eiga peninga eða fara með einhver völd geta haft töluverð áhrif á niðurstöðu dómsmála. Omni-sjúkrahúsið er að sjálfsögðu í þeim hópi og hlaut hin ósjálfbjarga móðir þriggja vikna gæsluvarðhald auk þess að þurfa að greiða sekt sem tekur hana vafalítið alla ævina. Þegar endanlegur dómur fellur gæti hún átt yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi fyrir að dreifa ósannindum á Netinu. Facebook-notendur hafa nú stofnað síðu til að vekja athygli á máli Mulyasari og berjast fyrir réttindum hennar en mál hennar er eitt fjölmargra af svipuðum toga þar sem vafasamur lagabókstafur og stjórnkerfi Indónesíu leggst á eitt gegn mannréttindum þegnanna.
Mest lesið „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Fleiri fréttir Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Sjá meira