Íslendingar ættu að geta nýtt sér andstöðu Breta 8. júlí 2009 11:59
Íslendingar ættu að geta nýtt sér andstöðu Breta við að fara með Icesave málið fyrir dómstóla til ná að hagstæðum samningum. Þetta kemur fram í áliti bresku lögfræðistofunnar Mishcon de Reyja í London sem unnin var fyrir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra. Skýrslan sem dagsett er 29. mars 2009 var gerð opinber í gær eftir að Morgunblaðið birti frétt um málið. Skýrslan er stíluð á Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, og fjallar um ábyrgð og lagalega stöðu Íslands í Icesave málinu. Að mati skýrsluhöfunda er það vafamál hvort Íslendingar beri ábyrgð á tryggingastjóði innistæðueigenda vegna Icesave. Þá benda skýrsluhöfundar á að Íslendingar ættu að nýta sér andstöðu Breta við að fara dómstólaleiðina í málinu til að ná hagstæðum samningum. Í niðurlagi skýrslunnar er þó tekið fram að lögfræðistofan hafi aðeins fengið þrjá sólahringa til að kynna sér málið og því lagt til að henni verið fengin meiri tími til að kryfja málið enn frekar. Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, hefur lýst því yfir í fjölmiðlum að lögmannsstofan Mishcon de Reya hafi verið ráðinn til að gera úttekt á lagalegum atriðum vegna frystingar Breta á eignum Landsbankans þar í landi. Hann hafi fundað með fulltrúum lögmannsstofunnar í London en þar hafi ekkert verið minnst á mat skýrsluhöfunda á Icesave málinu. Stjórnarandstaðan hefur gagnrýnt ríkisstjórnina fyrir að leyna gögnum en Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, hefur vísað þeirri gagnrýni á bug og segir að skýrslan breyti engu um stöðu Íslands í málinu. Mat skýrsluhöfunda á Icesave sé það sama og Íslendingar hafi barist fyrir frá upphafi án árangurs.
Mest lesið Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Kaffistofa Samhjálpar: Bjóða hús á tveimur stöðum Innlent Almenningur hafi aldrei átt séns Innlent Vissu ekki að þeir yrðu í auglýsingu fyrir Áfram Ísland Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Fleiri fréttir Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Íslandsbanki hækkar vexti Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sjá meira