Erlent

Ísraelsmenn stórskemmdu grafreit breskra hermanna

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
MYND/Telegraph

Sprengjuárásir Ísraelsmanna hafa stórskemmt grafreit breska heimsveldisins í Gaza-borg þar sem jarðneskar leifar breskra og ástralskra hermanna frá fyrri heimsstyrjöldinni hvíla.

Opinber bresk nefnd sem annast viðhald grafreitsins segir málið stóralvarlegt, að minnsta kosti 287 legsteinar séu brotnir eða skaddaðir og talið sé að ein ósprungin sprengja liggi á svæðinu og hana þurfi að gera óvirka áður en nokkurri lifandi manneskju verði hleypt þangað. Breska blaðið Telegraph krafði Ísraelsher skýringa á athæfinu en fékk ekkert svar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×