Erlent

Rannsókn flugslyssins á byrjunarreit

Franski flugherinn býr sig til leitar frá herstöð í Dakar, höfuðborg Senegals. Mynd/Nordicphotos/AFP
Franski flugherinn býr sig til leitar frá herstöð í Dakar, höfuðborg Senegals. Mynd/Nordicphotos/AFP
Franskir og brasilískir leitaflokkar hafa ekki enn fundið brak sem talið er vera úr Air France farþegaþotunni sem fórst aðfaranótt mánudagsins síðasta. Einn íslenskur ríkisborgari var um borð.

Rannsakendur flugslysins eru aftur komnir á byrjunarreit. Þó er verið að kanna þann möguleika hvort hraðamælar eða ytri búnaður sem safnar hraðamælingum í vélinni hafi bilað.

Öryggisráðherra Frakklands, Herve Morin, og bandarísk yfirvöld segja að ekkert bendi til þess að um hryðjuverk hafi verið að ræða, en geta þó ekki útilokað neitt. Leitarskilyrði á svæðinu eru að sögn erfið vegna slæms veðurs. Einu staðfestu upplýsingarnar um afdrif vélarinnar eru þær að hún hafi flogið inn í óveður stuttu áður en tölvukerfi hennar bilaði.

Flugvélaframleiðandinn Airbus sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem flugmenn Airbus flugvéla eru minntir á hvað þeim beri að gera í neyðartilfellum sem þessum. Um 230 fórust með vélinni og er flugslysið það skæðasta í heiminum síðan 2001.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×