Sigaði moskítóflugum á ráðstefnugesti Atli Steinn Guðmundsson skrifar 6. febrúar 2009 08:16
Bill Gates, stofnandi Microsoft, kom gestum tækniráðstefnu í opna skjöldu þegar hann hleypti tugum moskítóflugna úr búri út í salinn. Gates var þó ekki búinn að missa vitið heldur vildi hann með tiltækinu vekja athygli á hitabeltissjúkdómnum mýrarköldu sem smitast einmitt með moskítóflugum. Hann var að flytja ávarp á hinni árlegu tækni- og afþreyingarráðstefnu í Kaliforníu fyrr í vikunni og tengingin við mýrarköldu, sem einnig kallast malaría, var ekki alveg út í bláinn þar sem Gates var að kynna viðstöddum nýtt verkefni Bill og Melindu Gates-stofnunarinnar sem gengur út á að þróa bóluefni gegn sjúkdómnum. Tilraunir með efnið fara upp á svokallað þriðja stig eftir nokkrar vikur. Gates opnaði búr fullt af moskítóflugum hinn rólegasti og sagði við gestina að reyndar hefði hann kippt nokkrum moskítóflugum með sér og nú skyldu gestirnir leyfa þeim að flögra um salinn. Hann beið í heila mínútu með að segja frá því að þessar moskítóflugur væru algjörlega lausar við alla sjúkdóma. Auðvitað var um orðaleik að ræða að hluta til og sagðist Gates nú ætla að hleypa fleiri pöddum út í heiminn en enska orðið bug, sem táknar pöddu eða skordýr, er einnig haft um villur í tölvuforritum.
Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Sjá meira