Fjörutíu ára gamalt morðsamsæri í dagsljósið Atli Steinn Guðmundsson skrifar 28. janúar 2009 08:15 Mynd af Elísabetu II tekin í Hobart í Ástralíu í heimsókninni forðum. MYND/TOPHAM
Flett hefur verið ofan af samsæri um að ráða Elísabetu Englandsdrottningu og Filipp hertoga af dögum í Ástralíu árið 1970. Það var ástralskur fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður á níræðisaldri, Cliff Mc Hardy, sem ákvað loks að rjúfa þögnina um atburði sem gerðust þegar Elísabet og Filipp ferðuðust með járnbrautarlest um ástralskt fjalllendi á leið sinni til bæjarins Orange. Um var að ræða opinbera heimsókn til Ástralíu og hjónin fengu aldrei að vita að nokkuð hefði gerst. Trjádrumbi hafði verið komið fyrir á brautarteinunum af tilræðismönnum sem enn þann dag í dag eru óþekktir. Svo virðist hins vegar sem undirbúningurinn hafi ekki verið upp á marga fiska enda nægði hindrunin ekki til að stöðva lestina. Óvíst er þó um hvað gerst hefði ef lestin hefði verið á meiri hraða en stjórnandinn ók henni löturhægt. McHardy fullyrðir að drumburinn hafi verið á teinunum í þeim tilgangi einum að valda Elísabetu og Filipp skaða og sennilega ráða þau af dögum. Ekkert hefði verið á teinunum þegar könnunarlest fór þar um skömmu áður. Enginn var handtekinn vegna málsins en McHardy segist greina frá því nú í þeirri von að tilræðismennirnir gefi sig fram og geri hreint fyrir dyrum sínum.
Mest lesið Konráð segir námslánin vera gjöf en Helga Vala gjald Innlent Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Erlent Fyrstu merkin um kostnaðinn við stjórnarsetuna Innlent Drengurinn kominn af gjörgæsludeild Innlent Tugum sagt upp í þremur hópuppsögnum Innlent Önnur lægð nálgast landið Veður Stakk og skar fórnarlambið á háls Innlent Fleiri óánægðir en ánægðir í fyrsta skipti Innlent Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave Innlent Alvarlega slasaður eftir umferðarslys í Mývatnssveit Innlent Fleiri fréttir Hótar að útrýma írönsku þjóðinni Leikskólabarn lést eftir að það var kramið í koju Hvað er „sveitó“?: Spænskir stjórnmálaleiðtogar deila um Guernica Artemis II er á heimleið JD Vance heimsækir Orban fyrir kosningarnar um helgina Íranska þjóðin vöruð við því að nota lestar landsins í dag Íranska þjóðin fagni sprengjuregni Tillögum að vopnahléssamkomulagi komið til stríðandi fylkinga Tveir létust í snjóflóði í Hemsedal Fjær að heiman en nokkur maður frá upphafi Orbán sakaður um sprengjutilræði Yfirmaður leyniþjónustunnar felldur Féll fyrir borð í Norðursjó í ofsaveðri Flugliðinn nú „alvarlega særður“ Kanna skothvelli við Hvíta húsið Upplausn í Borgaraflokknum og formaðurinn sakaður um alræði „Opnið djöfulsins sundið, sjúku fantarnir ykkar“ Sautján ára drengur lést í snjóflóði Flugliðanum bjargað eftir hættulega björgunaraðgerð Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Mafíuforingi á flótta handtekinn í lúxusvillu á Amalfi-strönd Ekki þeir einu sem leita flugmannsins Ekki vopnahlé um páskana heldur regn sjálfsprengidróna Loksins sinni einhver í Westminster vinnunni sinni NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Önnur orrustuþota sögð hafa hrapað Óhapp um borð sem á sér engin fordæmi Sjá meira