Erlent

Tryggingasvik stóraukast í Noregi

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Norsk tryggingafyrirtæki segjast í auknum mæli verða vör við ýmiss konar svik og pretti í þeim tilgangi að fá tryggingafé greitt út og kenna versnandi efnahagsástandi um. Nú er til dæmis orðið töluvert um að bílflök finnist á hafsbotni í norsku fjörðunum. Tryggingafyrirtækinu hefur þá verið sagt að bílnum hafi verið stolið en oftar en ekki er það eigandinn sjálfur sem hefur látið bílinn hverfa til að nálgast tryggingaféð. Hækkun iðgjalda vegna tíðra svika nemur 1.500 norskum krónum, um 24.000 íslenskum, á hvern viðskiptavin tryggingafélaganna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×