Innlent

700 greindir á átta vikum

Tæplega sjö hundruð tilfelli svínaflensu hafa verið tilkynnt hér á landi frá lokum júnímánaðar.

Hröð aukning hefur orðið á síðustu vikum og segir á heimasíðu landlæknisembættisins að búast megi við að fjöldinn haldi áfram að aukast mikið.

Langflestir hinna smituðu eru á aldrinum 15 til 24 ára.

Á tímabilinu frá 29. júní til 23. ágúst bárust tilkynningar um 684 manns með inflúensulík einkenni eða staðfesta inflúensu. Konur voru 379 talsins og karlar 305.

- þeb




Fleiri fréttir

Sjá meira


×