Erlent

Slegist um hvalina

Óli Tynes skrifar
Japanskir hvalveiðimenn sprauta vatni á Sæhirðana.
Japanskir hvalveiðimenn sprauta vatni á Sæhirðana. MYND/AP

Félagar í Sea Shepherd samtökunum fá blautar móttökur þegar þeir hrella hvalveiðiskip Japana á Suður-Íshafinu.

Sæhirðarnir nálgast skipin á hraðskreiðum gúmmíb átum og kasta um borð flöskum með þráu smöri. Japanar svara fyrir sig með kröftugum vatnsdælum.

Sæhirðarnir segja raunar að Japanar hafi einnig kastað í þá járnboltum og meitt einhverja félagana. Japanar neita því.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×