Erlent

Borgarstjóri Lundúna bjargaði konu í neyð

Boris Johnson til þjónustu reiðubúinn.
Boris Johnson til þjónustu reiðubúinn.

Heimildarmyndagerðakonan Franny Armstrong komst heldur betur í hann krappann á mánudagskvöldinu þegar hún var að ganga heim til sín í London.

Í viðtali við The Daily Mail segist hún hafa verið að senda smáskilaboð úr símanum sínum á sama tíma og hún gekk heim á leið. Skyndilega var henni hrint harkalega utan í bifreið. Hún leit upp og sá hóp unglingsstúlkna en ein þeirra var vopnuð straujárni.

Franny segist hafa orðið dauðskelkuð þar sem hún hélt að stúlkurnar hygðust ræna sig. Það var þá sem hún sá mann koma hjólandi eftir stéttinni. Hún kallaði á hjálp og hjólreiðarmaðurinn brást snögglega við. Stúlkurnar stukku á flótta en ein þeirra missti straujárnið.

Hjólreiðarmaðurinn tók það upp og hljóp á eftir þeim kallandi: „Hvað haldið þið eiginlega að þið séuð að gera!?"

Stuttu síðar kom hann til baka og aðstoðaði hina skelfdu Franny. Og þá sá hún fyrst að bjargvætturinn hennar reyndist vera Boris Johnson, borgarstjóri Lundúna.

Boris bauðst svo að fylgja Franny heim sem og hún þáði enda verulega brugðið eftir árásina.

Sjálfur hefur Boris skorið upp herör gegn ofbeldi unglinga í London en það hefur farið gríðarlega harðandi á síðustu árum. Meðal annars eru stúlknagengin alræmd.

Í viðtali við The Daily Mail sagðist Franny ekki vera sammála pólitískum skoðunum Boris en hún kaus andstæðing hans, Ken Livingstone í síðustu borgarstjórnarkosningum.

Hún er hinsvegar sannfærð um að Boris komi að meira gagni í dimmu húsasundi andspænis unglingagengi heldur en Livingstone.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×